sunnudagur, janúar 04, 2004

Foooooookk hvað maður er að verða feitur.. jólin búin og ég held áfram að éta eins og svín.. stefnir ekki á­ gott!!!! En allavegana.. átakið byrjar á morgun, gonna shake my fat ass!!

Afmælið mitt í gær.. fór ekki alveg eins og ég og Kalli höfðum planað, en var mjög gott engu að síður. Fórum í­ mat til mömmu og litla Beib-fjölskyldan kom lí­ka.. Allt var bara í goody þar til mamma fór að tala um gamlar (og ógeðslegar) video upptökur af Þóru sjónvarpsstjörnu.. Sagði Kalla að ég hefði einhverntí­ma sagt að ég væri búin að finna rétta gaurinn þegar hann gæti horft á þetta og elskað mig samt.. Þannig að Kalli heimtaði að fá að sjá þetta OG ÉG TRYLLTIST!!!!!!!!!!! En hann lifði það af og við erum víst ennþá saman.. svo eftir lifir spurningin.. is he the one??!!

Sjáum til.. meira í næsta þætti.. hann er allavegana að elda kvöldmat.. Þannig að hann væri ágætis húsmóðir!! Þannig að við kí­kjum betur á þetta ;) Later..